Yoga Foods
Hildur Sif Hauks
Hæhæ! Mig langar að deila með ykkur upplifun minni á nýjum matsölustað Yoga Foods. Ég fór þangað í gær í hádegismat og kaffi. Yoga Foods sérhæfir sig í sykur- og glúteinlausum mat sem er mest megnis grænmetis eða vegan. Einnig er markmið matarins að stuðla ekki að bólgumyndun í líkamanum. Ég er alltaf að leita mér af nýjum stöðum til að grípa mér í eitthvað gott og hollt að borða og er þessi strax í uppáhaldi!
*Þessi færsla er ekki kostuð
Fékk mér rétt dagsins sem var Marrkanskur pottréttum með fersku salati og hummus. Fékk mér síðan kókos cappucciono með vegan ostaköku sem var rugl góð!
Yoga Foods er staðsettur á Grenásvegi
Við hliðina á Yoga Foods er skemmtileg búð Bændur í bænum sem sérhæfir sig í hreinni og lífrænni vöru. Síðan var íslenskur Kombucha bar! Ekkert smá ferskt og gott - mun klárlega stoppa við oft og ná mér í Kombucha!
Takk kærlega fyrir lesturinn og þangað til næst <3
Ef þið viljið fylgjast mér eitthvað meira getið kíkt á mig á Instagram!
- Hildur Sif Hauks